Fjallaspuni ehf
Helgidómur og handverk liðinna alda.
Saga íslenska þjóðbúningsins og handverksverslun.

Verslun og þjónusta

Helgidómur & handverk liðinna alda!
Kynning á Tungufellskirkju og íslenska þjóðbúninginum.

Handverksverslun
Verslun með handverk úr héraði ásamt garni og vönduðu efni.

Fjallafrúin -saumar-
Vefverslun Fjallafrúarinnar www.fjallafruin.is þar sem hægt er að finna allskonar fallegt.
Um Fjallaspuna
Fjallaspuni ehf er lítið einkafyrirtæki sem sérhæfir sig í allskonar handverki og að miðla þekkingu og hráefni fyrir handverk til landsmanna.
Hjá Fjallaspuna er rekin handverksverslun með handverk úr héraði og ýmsar aðrar vörur. Í versluninni má finna garn frá Mayflower og Pro Lana ásamt úrvali af vönduðu efni til saumaskapar.


Í húsnæði Fjallaspuna er einnig vinnustofa Fjallafrúarinnar þar sem framleiddar eru vörur sem hún hefur hannað.
Helgidómur & handverk liðinna alda er kynning þar sem rakin er saga Tungufellskirkju ásamt að þar er til sýnis t.d. Tungufellsfaldbúningurinn ásamt fleiri þjóðbúningum.


Helgidómur og handverk liðinna alda!
Hjá Fjallaspuna er hægt að bóka fyrirlestur um Tungufellskirkju og íslenska þjóðbúninginn. Fyrirlesturinn er um 30 til 40 mínútur en bókuð er ein klukkustund þar sem hægt er að skoða kirkjuna og þá búnininga sem til sýnis eru.

